Tónleikar – söfnum fyrir línuhraðli
Tónleikar í Hafnarkirkju Kirkjan safnar fyrir línuhraðli
Mæðgurnar Sólveig Sigurðardóttir og Kristín Jóhannesdóttir halda tónleika í Hafnarkirkju fimmtudagskvöldið 26. sept. kl. 20. Sólveig stundaði söngnám við Tónlistarháskólann í Utrecht í Hollandi og útskrifaðist þaðan síðastliðið vor. Á efnisskránni eru íslensk og erlend lög frá ýmsum tímum.
Aðgangseyrir er kr. 1000,- og mun hann renna óskiptur í söfnun til kaupa á línuhraðli fyrir Landspítalann.