Bjarnaneskirkja

Árið 1957 var hafin bygging á nýrri kirkju í Bjarnanesi eftir að Bjarnaneskirkja við Laxá var rifin. Hannes Kr. Davíðsson (d. 1995) arkitekt teiknaði kirkjuna en hugsanlega var hann fenginn til verksins þar sem hann dvaldi á æskuárum sínum í Svínafelli í Nesjum og sótti skóla í sveitinni. Bjarnesneskirkja var eina kirkjan sem Hannes teiknaði sé utan talin kaþólsk kirkja í Breiðholtinu. Eitt þekktasta verk Hannesar, ásamt Bjarnaneskirkju, mun vera Kjarvalsstaðir við Klambratún í Reykjavík.
Kirkjan sem Hannes teiknaði var óvenjuleg og umdeild svo ekki sé meira sagt. Þetta er nýstárleg bygging hvað form varðar en hún er mynduð af tveimur hlutum, píramída og sveigðri hvelfingu sem rís talsvert og víkkar mót vestri.

Hannes mun hafa verið fyrsti arkitektinn til að vinna hugmyndina um steypuskel þar sem veggir og loft renna saman í eitt. Birta var Hannesi hugleikin og má sjá þess merki í Bjarnaneskirkju. Dagsbirta berst úr einni átt þ.e. vestri um glugga sem eru á turninum og á gafli kirkjuskipsins, endurskip birtunnar gegnir því mikilvægu hlutverki í kirkjunni.
Byggingarmeistari var Guðmundur Jónsson en hann sá einnig um byggingu Hafnarkirkju. Í Skaftfellingi segir hann frá hvernig gekk að byggja kirkjuna og greinir m.a. frá undirslættinum sem var talsverður. Hannes vildi að kirkjan yrði ekki múruð og sáust því borðaförin vel. Einnig var ákveðið að einangra ekki kirkjuna en að leggja stokka inn í kirkjuskipið og leiða þannig heitt loft inn í kirkjuna. Nokkru síðar kom upp sú hugmynd að einangra kirkjuna en verkfræðingar lögðust gegn því. Fyrir framan kirkjuna hangir klukkan úr gömlu Bjarnaneskirkjunni við Laxá og eru enn notuð sem kirkjuklukka í dag.
Trékross er yfir miðju altari, hannaður af Hreini Eiríkssyni. Altaristafla kirkjunnar er úr Bjarnaneskirkju við Laxá og hangir yfir altarinu. Hún er máluð af Jóni Þorleifssyni listmálara árið 1924. Myndin samanstendur af fjórum aðskildum myndum, einni þríhyrningslaga sem sýnir boðun Maríu, einni stórri í miðið, sem sýnir fæðingu frelsarans og tveimur til beggja hliða. Vinstra megin er skírn Jesú í ánni Jórdan, hægra megin er krossburður Krists.

Í kirkjunni er harmoníumorgel, átta radda, sem Kvenfélagið Vaka gaf við vígslu kirkjunnar. Prédikunarstóllinn er úr oregon furu, gegnheill og látlaus, hannaður af arkitekt kirkjunnar. Skírnarfonturinn er útskorinn úr viði. Á hann er letrað: Leyfið börnunum að koma til mín.
Árið 2025 var kirkjan gerð upp að innan. Skipt var um allt gólfefni þar sem korkflísar voru fjarlægðar og í staðinn voru settar gabbró flísar úr grjóti sem kom frá Horni, ásamt venjulegum flísum.
Bjarnaneskirkja var vígð 4. júlí 1976 og “var þessi athöfn mjög virðuleg og veður hagstætt.” eins og segir í Morgunblaðinu þegar getið var um vígslu kirkjunnar.
Fleiri myndir af Bjarnaneskirkju er að finna á myndasíðunni okkar sem er hér í flipunum að ofan eða á Fickr-síðunni okkar.
Heimildir: Morgunblaðið og Skaftfellingur 14. árg.
