Skírn

Í heilagri skírn er skírnþegi tekinn inn í kirkju Krists. Í hinni evangelisk – lúthersku kirkju, sem Þjóðkirkjan er hluti af, er algengast að barn sé skírt meðan það enn er ómálga. Samkvæmt fyrirmælum Jesú Krists er barn skírt til nafns föður og sonar og heilags anda. Það er helgað Guði með Orði hans og bæn og ausið vatni.

Skírnin tengir kristnar kirkjur innbyrðis. Þrátt fyrir ólíkar áherslur kirkudeildanna í ýmsum efnum hafa þær flestar náð samkomulagi um að viðurkenna skírn hinna sem sameiginlegan grundvöll.

Undirbúningur skírnarathafnarinnar

  • Á að skíra barnið við almenna messu, fjölskyldumessu, í sérathöfn í kirkjunni eða í heimahúsi?  Meginreglan er sú að barn sé skírt í kirkju og að viðstöddum söfnuði eða fulltrúum hans, en gömul hefð er fyrir því á Íslandi að skírn geti farið fram á heimili barnsins.
    Skírnin er innganga í kirkju Krists og það fer mjög vel á því að söfnuðurinn sem er saman kominn til að lofa Guð í sunnudagsguðsþjónustunni taki þátt í að bjóða hinn nýskírða einstakling velkominn og biðja fyrir honum. Þá er góðum söngkröftum á að skipa og organistinn spilar skírnarsálminn á orgelið.  Skírn í messu er ókeypis en greitt er fyrir skírn við sérstaka athöfn.
  • Að velja skírnarvotta. Skírnarvottar mega vera 2-5 talsins. Skírnarvottar eru einnig kallaðir guðforeldrar barnsins og eiga að hjálpa til við að ala barnið upp í kristinni trú og styðja það á vegi trúarinnar. Þau eru vottar þess að skírnin hafi farið fram og er ætlað að biðja fyrir barninu á lífsleið þess. Það er mikilvægt hlutverk að vera guðforeldri. Á tilkynningunni um skírn þarf að gefa upplýsingar um kennitölu skírnarvottanna.
  • Undirbúningur skírnarathafnar. Hvítt er litur skírnarinnar og í flestum tilfellum er barnið skírt í skírnarkjól. Skírnarkjóll er til í mörgum fjölskyldum, en Hafnarkirkja á einnig þrjá kjóla sem lánaðir eru til skírnar, sjá hér. Engin leiga er af kjólunum en foreldrar borga fyrir hreinsun hans. Ef skírn fer fram í heimahúsi þarf að velja fallega skál til að skíra barnið upp úr og gott er að hugsa líka fyrir því hvar í íbúðinni er best að vera.  Staðið er við skírnina svo búa þarf til gott pláss í við skírnarskálina.  Sálmurinn sem yfirleitt er sunginn þegar barnið er skírt er númer 252 í sálmabókinni “Ó blíði Jesú blessa þú”.  Hægt er að hlusta á hann hér.
  • (Ath. ekki skylda! Að velja lesara. Við skírn eru lesnir tveir ritningarlestrar. Vel fer á því að einn úr hvorri fjölskyldu lesi lestrana en lesarinn má líka vera einn.) Lestrarnir eru tveir, svohljóðandi:
    • Jesús sagði: “Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Sjá ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.” (Matt. 28.18-20).
    • Heyrum ennfremur þessa frásögn: Menn færðu börn til Jesú, að hann snerti þau, en lærisveinarnir átöldu þá. Þegar Jesús sá það, sárnaði honum og hann mælti við þá: “Leyfið börnunum að koma til mín og varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki. Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma.” Og hann tók börnin sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau. (Mark. 10.13-16)