Fréttir

Hvernig hljóma kirkjur landsins?

Á síðasta ári var sett á laggirnar vefsíða um kirkjuklukkur á Íslandi. Er það Guðmundur Karl Guðmundsson sem er umsjónarmaður síðunnar en um síðuna segir meðal annars:

Verkefnið Kirkjuklukkur Íslands gengur út á að skrásetja allar kirkjuklukkur á Íslandi. Saga klukkna í hverri kirkju verður skráð, gerð þeirra og uppruni. Þá verða reglur/hefðir um notkun klukknanna skráð, allar samsetningar hringinga teknar upp og klukkurnar ljósmyndaðar…  Tilgangurinn er að gera upplýsingar um allar kirkjuklukkur á Íslandi aðgengilegar á einum stað.

Slóð síðunnar er www.kirkjuklukkur.is en síðan er enn í vinnslu og því aðeins nokkrar klukkur komnar inn þegar þetta er skrifað.