Vinir í bata – 12 spora kerfið byrjar í Hafnarkirkju
Boðið verður upp á Tólf spora starf í Hafnarkirkju og eru kynningarfundir helgina 20. feb. – 22. feb. Allir eru hvattir til að koma og kynna ykkur þetta starf, sem hefur gefið mörgum svo mikið. Sr. Stígur (stigur.reynisson@kirkjan.is) og Sveinbjörg (sveinbjörg7@talnet.is) munu leiða starfið í vetur
Fyrsti fundur verður föstudaginn 20. febrúar kl 17:00 og þá gefst tækifæri til að kynna sér hvernig 12 sporin eru unnin.
Fundirnir verða vikulega og á fyrstu þremur fundunum sem eru öllum opnir er unnið með kynningarefnið sem leiðir smátt og smátt inn í sjálfa 12 spora vinnuna. Á 4. fundi 27. febrúar er hópunum lokað og ekki fleirum bætt við.
Kirkjan býður þátttakendum upp á þetta starf þeim að kostnaðarlausu.
Tólf spora bati er aðferð sem er hvorki á ábyrgð neins trúarhóps né safnaðar. Samt sem áður finna margir sem nota efnið að það samræmist þeirra eigin andlegu þörfum og trú. Það hefur engin opinber trúartengsl.
Það er samt sem áður aðferð sem hjálpar okkur að enduruppgötva og dýpka andlega þáttinn í okkur sjálfum.
Við komumst líka að raun um það í Tólf spora vinnunni að okkar andlega hlið er mikilvæg. Við lærum að lifa lífinu samkvæmt leiðsögn Guðs, okkar Æðri máttar. Við verðum þess meðvituð að kvíðinn eða örvæntingin sem við finnum fyrir, er afleiðing þess að við horfum framhjá eða höfnum samfélagi við okkar æðri mátt.