FréttirHafnarsókn

Unnið að frágangi við kirkjugarð

Eins og margir vita þá er verið að undirbúa nýjan kirkjugarð fyrir Hafnarbúa. Garðurinn verður staðsettur við hliðina á þeim gamla, en nýi gaðurinn verður rúmum metra lægri en sá eldri. Vegna þess þá þó nokkur fallhætta.

Byrjað var í dag að koma fyrir staurum á brún gamla garðsins til að varna því að detta ekki fram af. Í staurunum verða einnig innbyggð ljós og lífgar það upp garðinn og verður mikil prýði af.

ljos4
Einn af ljósastaurunum í Hafnarkirkjugarði

Olgeir Jóhannesson stjórnar greftri og mun hann ásamt Finni Jónssyni og Erni ‘Bróa’ Arnarsyni koma staurunum fyrir. Er vonast eftir því að staurarnir með lýsingu verða komnir í gagnið á allra næstu dögum eða vikum

Hægt er að sjá myndir hér af þróun hins nýja garðs.