FréttirHafnarsókn

Kyrrðarstundir á föstu

Kyrrðarstundir á föstu annan hvern fimmtudag kl. 18:15 í Hafnarkirkju.

Fastan hófst á öskudaginn, miðvikudaginn 22. febrúar. Líkt og undanfarin ár verða kyrrðastundir í Hafnarkirkju á föstunni. Helgihald í kirkjunni á föstu verður með svipuðu sniði og áður. Stundirnar hefst kl. 18:15.  Þar verður lesið úr píslarsögu Jesú, Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir, sungnir sálmar og beðnar bænir.  Beðið verður sérstaklega, stríðandi átökum, fyrir sjúkum og þeim sem minna mega sín. Tekið er á móti sérstökum bænarefnum sem fólk vill að borin verði fram. Hægt er að senda bænarefni í tölvupósti á netfangið bjarnanesprestakall@bjarnanesprestakall.is

Fastan á að minna okkur á þá 40 daga sem Jesús fastaði í eyðimörkinni. Fastan miðar að dauða Jesú og er undirbúningstími kristinna safnaða og að þeir íhugi þá atburði sem leiddu til aftöku Jesú á föstudeginum langa.  Í sjö vikur fyrir páska íhuga kristnir menn þessa atburði.  Fastan hefur ekki lengur þann sess í hugum fólks sem hún hafði áður fyrr, þegar t.d. var ekki borðað kjöt frá öskudegi til páskadags.  Fastan er tími íhugunar og iðrunar og hefur þess mátt sjá stað í kristinni kirkju um aldir.  Helgihaldið í kirkjunni ber merki þeirra atburða sem urðu í lífi Jesú Krists sem leiddu til dauða hans á krossi. Litur föstunnar, sjövikna föstu, langaföstu er fjólublár, litur iðrunarinnar.

Eru allir hvattir að koma til kirkju á föstutímann til íhugunar, uppbyggingar og trúarstyrkingar.