BjarnanessóknFréttir

Bjarnaneskirkja við Laxá endurgerð

Það eru margir sem sakna Bjarnaneskirkju við Laxá enda var þetta glæsileg kirkja sem stóð á fallegum stað í Nesjum, og eiga þar margir góðar minningar. Á dögunum var Bjarnanessókn færð kirkjan endurbyggð að gjöf í formi líkans. Þúsundþjalasmiðurinn Ragnar Imsland sá um smíðina, allt frá girðingarstaurum að kirkjuklukkunni sem hangir í turni kirkjunnar. Þetta er sannkölluð listasmíð, eða eins og Hjalti Egilsson formaður sóknarnefndar sagði við afhendinguna: „Þetta er ekki bara líkan, þetta er listaverk.“

Bjarnanesneskirkja við Laxá. Mynd: Þjóðminjasafn Íslands
Líkanið af Bjarnaneskirkju
Framhlið kirkjunnar.

Kirkjan er 90 sentimetrar að lengd og 43 að breidd. Það hefur svo sannarlega verið vandað til verka eins og Ragnari er von og vísa, og reyndi hann eftir bestu getu að hafa þetta sem líkast gömlu kirkjunni og hægt var. Það þýddi að legið var yfir gömlum myndum því ekki voru til neinar almennilegar teikningar af kirkjunni. Verkið tók um fjóra mánuði og lauk með því að hann afhenti sóknarnefndinni kirkjuna. Ragnar útbjó kirkjuna að hægt er að koma fyrir lýsingu og innanstokksmunum sem hugsanlega koma einhvern tímann í framtíðinni.

Á heimasíðu Bjarnanesprestakalls segir meðal um kirkjuna

Einar Erlendsson teiknaði Bjarnaneskirkju eftir hugmynd Rögnvalds Ólafssonar. Yfirsmiður kirkjunnar var Jens Eyjólfsson. Bjarnaneskirkja var svo vígð árið 1911. Kirkjan var byggð úr steypu og með kjallara undir. Var kjallarinn notaður til samkomuhalds og mannfunda allt til ársins 1952. Enn í dag eru menn og konur að minnast á böllin og skemmtanirnar sem haldin voru í kjallaranum.

Bjarnaneskirkja við Laxá var á sínum tíma hið veglegasta hús. Það var að tilstuðlan kvenna í Nesjunum að stór og vegleg altaristafla var sett í kirkjuna árið 1922, sem gerð var af Jóni Þorleifssyni frá Hólum í Nesjum.

Almenn ánægja var með kirkjuna en fljótlega fór að bera á stórfelldum smíðagöllum. Steypan í kirkjunni var vond og auk þess lak turninn. Kirkjan var að mestu leyti endurbyggð á árunum 1922 – 1924 en viðgerðirnar þóttu ekki fullnægjandi. Það var svo árið 1956 að fulltrúi húsasmíðameistara ríkisins lýsti því yfir að kirkjan væri varla hæf til viðgerðar. Kirkjan var rifin 1973.

Sóknarprestar:

Séra Benedikt Eyjólfsson 1906 – 1913

Séra Þórður Oddgeirsson 1914 – 1918

Séra Ólafur Stephensen 1919 – 1930

Séra Eiríkur Helgason 1931 – 1954

Séra Rögnvaldur Finnbogason 1954 – 1959

Séra Skarphéðinn Pétursson 1959 – 1974

www.bjarnaneskirkja.is

Hægt verður að skoða kirkjuna í Ekru við Víkurbraut á meðan fundinn verður góður staður fyrir hana í Bjarnaneskirkju þar sem hún mun verða einn af dýrgripum kirkjunnar.

Vert er að þakka öllum þeim sem komu að gerð kirkjunnar með einum eða öðrum hætti.

Fleiri myndir af kirkjunni má finna Hér

Hér til hliðar má sjá þegar Ragnar Imsland afhendir Hjalta Egilssyni formanni sóknarnefndar Bjarnanessóknar kirkjuna.