Andlátsfregn
Helgi Halldór Árnason frá Setbergi í Nesjum andaðist á hjúkrunarheimilinu þann 19. mars s.l. Útför hans fór fram frá Hafnarkirkju mánudaginn 24. mars kl. 13:00 og hann hlaut leg í kirkjugarðinum við Laxá. Helgi var 88 ára gamall þegar hann lést. Guð blessi minningu hans.