Úr vísitasíu biskups – myndir
Eins og fram hefur komið á fyrri fréttum vísiteraði biskup Íslands Bjarnanesprestakall 12. – 14. nóvember sl.
Vísitasían gekk vel fyrir sig og var ekki annað að sjá en allir voru sáttir þegar að lokum kom á sunnudeginum.
Prestarnir voru með myndavélarnar á lofti og tóku myndir af biskupi og öðrum sem komu að vísitasíunni.
Myndirnar má sjá hér fyrir neðan en myndirnar eru á Flickr-síðu prestakallsins.
En prestar, starfsfólk og sóknarnefndarfólk vilja þakka biskupi, biskupsritara og prófasti fyrir komu þeirra hingað til okkar og eru þau ávallt velkomin aftur.