FréttirHafnarsókn

Allra heilagra messa í Hafnarkirkju

Föstudaginn 1. nóvember.
Messa kl. 20:00.
Látinna minnst í tali og tónum.
Hægt að kveikja á kertum til að minnast látinna.

Allra heilagra messa er haldin 1. nóvember ár hvert. Allra heilagra messa á sér fornar rætur því vitað er til að messur þar sem beðið var fyrir látnum voru haldnar þegar á 4. öld eftir Krist.

Allra heilagra messa varð snemma einn af helgustu messudögum íslensku kirkjunnar og var ekki afnumin í þeirri mynd fyrr en árið 1770, eða rúmum 200 árum eftir upphaf siðaskipta.

Þetta er messudagur þeirra heilagra manna sem ekki hafa sérstakan
messudag. Allra heilagra messa er í sívaxandi mæli að verða minningardagur um þau sem gengin eru á undan okkur.

Að þessu sinni verður allra heilagra messu minnst föstudagskvöldið 1. nóvember með helgistund í Hafnarkirkju kl. 20:00.  Guðsþjónustan er sérstaklega helguð minningu látinna og einkum þeirra sem látist hafa á undangengnu ári.

Aðstandendum og öllum þeim sem misst hafa er boðið að koma og eiga friðsæla, íhugunar-, bæna- og minningastund. Einnig verður í boði að koma til altaris og kveikja á kertum til að minnast þeirra sem látnir eru.

Í messunni verður fjallað um merkingu þessa helgidags. Þá verður sérstaklega beðið fyrir þeim sem létust síðastliðið ár og nöfn þeirra nefnd. Ef  óskað er eftir að aðrir sem látnir eru verði nefndir og sérstaklega beðið fyrir þeim er það auðvitað velkomið.

Beiðnum um það má koma til sr. Stígs í síma 862 6567 eða á netfangið stigur@kirkjan.is