BjarnanessóknBrunnhólssóknFréttirHafnarsóknHofssóknKálfafellsstaðarsókn

Nýr prestur í Bjarnanesprestakall

Kristján Ágúst Kjartansson

Þriðjudaginn 3. febrúar kom valnefnd Bjarnanesprestakalls saman en tilefni þess var að í byrjun árs auglýsti biskup Íslands hálft starf í prestakallinu.

Ein umsókn barst og kom því nefndin saman til að hitta þann sem sótti um. Skemst er frá því að segja að nefndin lagði til við biskup að samþykkja umsóknina sem hún hefur gert.

Nýr prestur í Bjarnanesprestakalli heitir Kristján Ágúst Kjartansson

Kristján Ágúst er fæddur árið 1978 í Reykjavík og ólst upp í Garðabæ. Kristján lauk mag. theol. prófi frá Háskóla Íslands árið 2019 og starfaði víða á æskulýðsvettvangi Kirkjunnar fyrst í barna- og æskulýðsstarfi Hallgrímskirkju frá 2006 og nú síðast sem framkvæmdarstjóri Æskulýðssambands Reykjavíkurprófastsdæma frá 2015 til ársins 2023. Kristján á einn son f. 2002, Ísar Ágúst Kristjánsson, arkitekt.

Sóknarprestur, sóknarnefndir og starfsfólk bjóða Kristján hjartanlega velkominn en hann mun hefja störf á næstu vikum.

Þið megið svo endilega hnippa í hann og heilsa honum þegar þið sjáið hann.