Hvað var um að vera í prestakallinu í mars
Nóg var um að vera í prestakallinu í marsmánuði. Fjöldinn allur af messum og öðrum athöfnum. Í öllu prestakallinu voru 12 guðsþjónustur, kyrrðarstundirnar voru fjórar og voru þær allar í Hafnarkirkju á miðvikudögum. Prestar prestakallsins sem og organisti tóku þátt í Skaftfellingamessu í Breiðholtskirkju á vegum Skaftfellingafélagsins þann 17. mars. Fermingar hófust þann 23. mars með einu barni en alls voru 18 börn fermd í fimm athöfnum í þremur kirkjum í prestakallinu. Engar hjónavígslur voru. Eitt andlát varð:
- Helgi Halldór Árnason
Setberg í Nesjum
Skírð voru fjögur börn:
- Hafsteinn Þór
Foreldrar: Sandra Lind og Hlynur - Auður Inga
Foreldrar: Halldór Halldórsson og Bergþóra Ó. Ágústsdóttir - Elín Rós
Foreldrar: Eymundur Ragnarsson og Birna Þ. Sæmundsdóttir - Sverrir Ketill
Foreldrar: Gunnar Páll og Helga Guðbjörg