Hvað var um að vera í prestakallinu í júní
Þó sumarið hafi verið komið á full þá var nóg um að vera í prestakallinu í júní mánuði. Mikið var um gleðitíðindi í mánuðinum en einnig var söknuður áberandi. Síðustu fermingar vetrarins voru í júní en þá voru tvær stúlkur fermdar. Guðsþjónustur voru fjórar í mánuðinum í fjórum mismunandi kirkjum. Í Hofskirkju var boðið uppá kvöldguðsþjónustu í fyrsta skiptið og gafst það vel og mættu yfir 30 manns í messu, þá má geta þess að rétt rúmlega 70 manns eru skráð í sóknina.
Andlát urðu þrjú í prestakallinu.
- Guðlaugur Gunnarsson Svínafelli Öræfum
- Sigurður Jóhannsson Hnappavöllum
- Sigurður Stapa
Guð blessi þau
Fjögur börn voru borin til skírnar.
- Garðar Logi Foreldrar: Ólöf Ósk og Gunnar Örn
- Daníel Borgar Foreldrar: Sigrún og Kristján Rúnar
- Kristján Hafberg Foreldrar: Erla Berglind og Sigurbjörn
- Katla Karítas Foreldrar: Eva Lind og Bjarni Steinar