FréttirHafnarsókn

Kyrrðarstundir. Á hverjum miðvikudegi kl. 18:15

Nú líður að föstu. Hún hefst á öskudag 10. febrúar. Í sjö vikur fyrir páska íhuga kristnir menn pínu og dauða Jesú. Fastan hefur ekki lengur þann sess í hugum fólks sem hún hafði áður fyrr, þegar t.d. var ekki borðað kjöt frá öskudegi til páskadags. Fastan er tími íhugunar og iðrunar og hefur þess mátt sjá stað í kristinni kirkju um aldir. Helgihaldið í kirkjunni ber merki þeirra atburða sem urðu í lífi Jesú Krists sem leiddu til dauða hans á krossi.

Í Hafnarkirkju verður helgihald á föstu með svipuðu sniði og áður. Auk hefðbundinnar guðsþjónustu annan hvern sunnudag verður kyrrðarstund hvern miðvikudag fram að páskum, fyrst á öskudag 10. febrúar.

Stundin hefst kl. 18:15. Þar verður lesið úr píslarsögu Jesú, sungnir sálmar og beðnar bænir. Beðið verður sérstaklega fyrir sjúkum og þeim sem minna mega sín og taka prestarnir á móti sérstökum bænarefnum sem fólk vill að borin verði fram. Kyrrðarstundinni lýkur síðan með altarisgöngu.

Við hvetjum ykkur til að koma til kirkju á miðvikudögum fram að páskum og nota föstutímann til íhugunar, uppbyggingar og trúarstyrkingar.