Kyrrðarstundir á föstu
Kyrrðarstundir verða alla miðvikudaga klukkan 18:15 í Hafnarkirkju frá 1. mars- 12.apríl. Róleg og notaleg stund fyrir alla.
Fastan hófst á öskudaginn og lýkur á páskum. Á föstunni er verið að minna okkur á þá 40 daga sem Jesús fastaði í eyðimörkinni. Fastan miðar að dauða Jesú og er undirbúningstími kristinna safnaða og þeir íhugi þá atburði sem leiddu til aftöku Jesú á föstudeginum langa.
Kyrrðarstundirnar eru með því sniði að lesnar eru bænir, sungnir sálmar og lestur úr píslasögu Jesú ásamt Passíusálmum Hallgríms Péturssonar.
Hægt er að senda bænarefni í formi fyrirbæna á netfangið maria.ba@kirkjan.is
Við hvetjum ykkur til að koma til kirkju og nota föstutímann til íhugunar, uppbyggingar og trúarstyrkingar.
Verið velkomin