BjarnanessóknBrunnhólssóknFréttirHafnarsóknHofssóknKálfafellsstaðarsókn

Hvað gerðist í Bjarnanesprestakalli á árinu 2017. Árið í tölum

Nú er árið 2017 á enda og því er gott tilefni að horfa yfir farinn veg. Hvernig var árið 2017 í Bjarnanesprestakalli? Það er ekki hægt að segja annað en nóg hafi verið um að vera og var m.a. nýr prestur skipaður, María Rut Baldursdóttir. Kálfafellsstaðarkirkja fagnaði stórafmæli með messu á Ólafsmessu 29. júlí þar sem kirkjunni var færð gjöf í formi moldarkers (fósturjarðartrogs).

Messur voru reglulega yfir allt árið en alla jafna voru þær á hálfsmánaðarfresti. Hafnarkirkja var vel nýtt til ýmissa starfa, þ.á.m. kórastarf, foreldramorgna og félagsstarfa.

Kirkjulegar athafnir (frátöldum messum) voru með mesta móti á árinu þó ekki hafi tekist að slá árinu 2016 við. Hér fyrir neðan má sjá tölulegt yfirlit yfir þá viðburði.

  • Skírnir: 17
  • Hjónavígslur: 7
  • Útfarir: 20
  • Fermingar: 24 (börn)

Eins og sjá má voru útfarir margar en þó aðeins færri en árinu áður.. Það er þó gleðilegt að skírir voru næstum því á pari við árið 2016 en þá voru 19 börn skírð.

Hægt er að bera saman fleiri tölur frá árinu áður með því að smella hér.

Þess má geta að hér er ekki um tæmandi lista að ræða því aðeins er farið í kirkjubækur prestakallsins. Athafnir eins og endurnýjun hjúskaparheita kemur ekki hér fram né athafnir sem framkvæmdar voru af öðrum prestum.