BjarnanessóknBrunnhólssóknFréttirHafnarsóknHofssóknKálfafellsstaðarsókn

Fermingarbörn 2018

Í vetur hefur hópur tæplega 20 ungmenna sótt fermingarfræðslu í Hafnarkirkju og hefur oft verið kátt á hjalla. Farið var m.a. í fermingarferð í Öræfin þar sem góður tími gafst í fræðslu og leik.

Í ár verða fermingardaga ekki svo ýkja margir. Í Hafnarkirkju verða þeir tveir auk einnar sumarfermingar. Að auki verður fermt í Brunnhólskirkju, Hoffellskirkju og Hofskirkju.

Hér fyrir neðan má sjá lista með nöfnum fermingarbarna og hvað dag þau munu fermast. Smellið á myndina til að sjá hana stærri.