FréttirHafnarsókn

Hátíðarmessa í Hafnarkirkju

Sunndaginn 14. nóvember var hátíðarmessa í Hafnarkirkju þar sem biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, prédikaði. Messan var endapunktur vísitasíu hennar um Bjarnanesprestakalls sem staðið hafði í þrjá daga.

Prestar Bjarnanesprestakalls, sr. Gunnar Stígur og sr. María Rut, þjónuðu fyrir altari og Samkór Hornafjarðar söng undir stjór organistans og kórstjórans Jörg Sondermann.

Sálmarnir sem sungnir voru:

  • Vor Guð er borg á bjargi traust (Sálmur 284 v. 1, 2, 4)
  • Þig lofar faðir líf og önd (Sálmur 223)
  • Hallelúja, dýrð sé Drottni (Sálmur 224)
  • Í svörtum himingeimi (Ekki í sálmabók)
  • Í fornöld á jörðu var frækorni sáð (Sálmur 302 v. 1 – 3)
  • Son Guðs ertu með sanni (Sálmur 56)

Hægt er að horfa á messuna á YouTube síðu Hafnarkirkju eða með því að smella HÉR