FréttirHafnarsókn

Bleik Hafnarkirkja í bleikum október

Í ár rétt eins og síðustu ár hefur Hafnarkirkja verið lýst bleikum lit nú í oktober. Er þetta í tilefni átaksins Bleika slaufan sem stendur nú yfir.

Bleika slaufan er tákn krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini í konum. Árið 2000 var átakinu hleypt af stokkunum hérlendis og hafa sóknir um allt land verið að bætast í hópinn og sýnt átakinu stuðning í verki með því að lýsa upp kirkjur sínar.

Bryddað var upp á nýung í ár með bleikri messu. Félagar úr Krabbameinsfélagi Suðausturlands fluttu hugvekju og lásu bænir. Eftir messuna var kaffi í safnaðarheimilinu og hægt var að leggja inn frjáls framlög.

Messan tókst með ágætum og standa vonir til að þetta verði að árlegum viðburði.